|
30.03.2009 15:22:07 / björg
2 apríl Hafdís 2 apríl Toni 3 apríl Óla 4 apríl Anna 10 apríl Maja 10 apríl Hjördís 12 apríl Steinþór 13 apríl Hulda 18 apríl Guðrún 19 apríl Bára 19 apríl Árni 21 apríl Baldvin 21 apríl Ási 21 apríl Aníta 23 apríl Hanna 24 apríl Sandra 30 apríl Dögg
»
30.03.2009 15:18:54 / björg
Ég er nú búin að vera veik í nokkurn tíma og er nú rétt að ná mér almennilega Dagný var líka lasin
»
30.03.2009 15:15:49 / björg
1 mars Salman 2 mars Kristjana 2 mars Dísa 4 mars Íris 5 mars Halli tengdapabbi látinn 7 mars Steini 8 mars Barbara 8 mars Nonni látinn 9 mars Sigurður 9 mars Maggi mörgæs 12 mars Guðný 15 mars Brandur 20 mars Eyjólfur 231 mars Bassi 22 mars Alla 23 mars Harpa 26 mars Þórður 27 mars Sunneva Líf 31 mars Mamma 31 mars Erla 31 mars Hlynur
»
30.03.2009 15:12:14 / björg
1 feb Birna Dögg 1 feb Guðrún Linda 2 feb Guðný 2 feb Steini 2 feb Eiríkur Hrannar 3 feb Snæbjört 9 feb Hrefna 15 feb Sigurjóna 16 feb Birna 17 feb Ingólfur 20 feb Auður 20 feb Hrafnhildur 25 feb Björg (Ég sjálf) 25 feb Hulda Björk
»
23.01.2009 18:33:59 / björg
5. jan Anna Páls 5. jan Snæfríður 6 jan Róbert 7 jan Herdís 14 jan Guðmundur góði 16 jan Dísa 16 jan Sigurjón 18 jan Friðrik 19 jan Kári 19 jan Lind 19 jan Anna 20 jan Siggi 20 jan Eva 22 jan Helga 28 jan Jóhanna 28 jan Sigga Anna 30 jan Siggi 30 jan Bjarni 30 jan Dóri 31 jan Gugga
»
04.12.2008 22:33:49 / björg
Það er kökubasar á morgun hjá 10 bekkingum og hver nemandi á að koma með 2 hnallþórur. ég er búin að vera pungsveitt í kvöld við að baka tertur og það tókst bara nokkuð vel þó að ég segi sjálf frá. og set ég hér með myndir af hnallþórunum til hliðar
»
04.12.2008 22:31:58 / björg
1. des Marín 1. des Alli 2. des Anna Heiða 5. des Adrían Máni 6. des Stjáni 6. des Baldvin Helgi 7. des Sólbjörg (látin) 8. des Stebbi 8. des Mikael Rafn 10. des Díana Lind 11. des Marteinn 13. des Stína 15. des Pabbi (látinn) 15. des Hafsteinn (látinn) 15.des Anna Björg 15. des Íris Björg 17. des Svenni 18. des Steinþór 20. des Michael 20. des Þorgrímur Svavar 21. des Dagur Þór 24. des Veiga 25. des Katla Ósk 25. des Steini 28. des Haddi 29. des Tóti 30. des Hólmfríður amma (látin) 30. des Kolla 31. des Sísí
»
27.11.2008 23:31:06 / björg
1 bolli vatn 1 bolli sykur 4 stór egg 2 bollar þurrkaðir ávextir 1 teskeið bökunarsódi 1 teskeið salt 1 bolli púðursykur 1 bolli sítrónusafi 1 bolli hnetur 1 FULL flaska af Grand Smakkið Grandið til að vera viss um að það sé ekki skemmt. Takið stóra skál. Athugið Grandið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt. Hellið í einn bolla og drekkið. Endurtakið. Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra, mjúka skál. Bætið 1 teskeið útí og hrærið aftur. Athugið hvort Grandið sé nokkuð farið að skemmast, fáið ykkur annan bolla. Slökkvið á hrærivélinni. Brjótið tvær fætur og bætið í skálina og hendið út í bollanum af þurrkuðu ávöxtunum. Hrærið á kveikivélinni. Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærararrarna losið þá þá af með rúfskjárni. Bragðið á Grandinu til að athuga brestgratið. Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju. Hverjum er ekki sama. Athugið Grandið. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar. Bætið einu borði. Skeið. Af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt. Smyrjið ofninn. Stillið kökuformið á 250°. Gleymið ekki að hræra í stillaranum. Hendið skálinni út um gluggann. Athugið Grandið aftur. Farið að sofa. (Finnst ykkur ávaxtakökur hvort sem er nokkuð góðar?).
»
19.11.2008 16:11:51 / björg
Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalíum
Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót.
Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það) Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.
Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi. Og annað hvítt fyrir taugakerfið. Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera. Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því. Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum. Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða.
Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta ; á eftir eplinu, tannbursta ; á eftir banananum, tannbursta ... Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli. Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar, tennurnar...
Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn.
Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).
Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí.
Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.
Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!! Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!
Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar. Var ein hendi laus?
Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!
Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir... En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið. Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.
Ef ég er senda þér þetta í annað sinn , er það vegna þess að þrátt fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer
»
14.11.2008 15:49:44 / björg
það eru komnar inn myndir af konfektmolunum mínum og líka mynd af Sigurbjörgu sem ég málaði ( Hannyrðir og föndur)
»
12.11.2008 16:36:24 / björg
Þá hef ég látið verða af því að fara á námskeið í konfektgerð og nú verð í harðri samkeppni við Nóa og Siríus. Það er auðveldara að búa til konfekt heldur en maður heldur og ofsalega gaman, sérstaklega þegar maður er með Baily´s eða Grand Mariner fyllingar hikk Það koma myndir fljótlega af molunum mínum
»
05.11.2008 15:24:40 / björg
Það ber meira á útlendingahatri núna heldur en áður. Marzena hefur orðið fyrir barðinu á hundleiðinlegum íslendingum sem þola ekki að sjá að það séu útlendingar að vinna hérna á íslandi. Þetta er sama fólkið sem myndi aldrei fá sér vinnu í Krónunni af því að það er fyrir neðan þeirra virðingu. Ef ég væri verslunarstjóri og þyrfti að velja úr hópi fólks annars vegar íslendinga og hins vegar pólverja ég mundi hiklaust ráða pólverja því þau mæta alltaf í vinnu og er ekki að taka sér 2 veikindadaga í mánuði
Það hafa komið fólk að versla í Kr. úr ónafngreindri fasteignasölu og hrokinn í þeim er að drepa okkur og þau hafa litið niður á okkur frá byrjun en núna spyr ég hver okkar hefur vinnu???
»
05.11.2008 15:19:20 / björg
1. nóv Jói 2. nóv Bogga 5. nóv Óskar 6. nóv Ingólfur látinn 6. nóv Guðfinna 7. nóv Árni Leó 8. nóv Sonya 8. nóv Ási 8. nóv Ásta 9. nóv Þórunn 10. nóv Kristín 10. nóv Benni 12. nóv Ólöf 16. nóv Þorgerður 20. nóv Díana 20. nóv Ingibjörg frá Jaðri látin 21. nóv Auðbjörn 22. nóv Þremill 23. nóv Sigrún 23. nóv Fríða 24. nóv Matthildur 25. nóv Þóra látin 28. nóv Elísabet
»
29.10.2008 16:09:10 / björg
Jæja þá er ræktin fyrir bí. Ég neyddist til að fara til læknis í gær vegna þess að það tók sig upp gamalt íþróttameiðsl. Mér er semsagt bannað að vera í líkamsrækt í 2 til 3 vikur á meðan hnéið er að jafna sig. Ef það jafnar sig ekki á þessum tíma þá verð ég að fara í speglun til að sjá hvað er að hrella mig (kannski þetta sé aldurinn) en hvað um það að öðru leiti er ég bara spræk
»
07.10.2008 22:20:31 / björg
Fyrirgefðu fyrri skrif mín. Auðvitað ertu alltaf velkominn í heimsókn hvenær sem er.
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|